Kokka á Laugavegi 47

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna ykkur kæru mataráhugamenn sem eiga leið um miðbæinn, að sú frábæra verslun Kokka á Laugavegi 47 hefur uppá að bjóða vörur frá danska framleiðandanum Hr. Skov sem nú njóta sívaxandi vinsælda. Fyrir utan að geta verslað þessar vörur hjá þeim hafa þau einnig hugmyndir um að nýta þær á sínu frábæra kaffihúsi sem þar er á efri hæð hússins.